Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, vonast til þess að rússneski herinn veikist verulega í stríðsrekstri sínum í Úkraínu, svo að hann verði ekki aftur fær um sömu voðaverk og hann hefur framið þar.
„Við viljum sjá rússneska herinn veikjast svo mikið að hann geti ekki gert samskonar hluti og hann hefur gert í innrás sinni í Úkraínu,“ sagði Austin við blaðamenn eftir fund hans og Volodimírs Selenskís, forseta Úkraínu.
Anthony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sat einnig á fundinum.
Austin telur að Úkraína geti unnið stríðið þar í landi ef herinn er rétt búinn.
„Við trúum því að [Úkraínumenn] geti sigrað, þau trúa því að [þau] geti sigrað ef þau eru rétt búin og hafa rétta stuðninginn.“
Mánuðum saman hefur Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, beðið önnur ríki um vopn. Ákall hans virðist hafa hlotið nokkra áheyrn en nokkur ríki Atlantshafsbandalagsins hafa samþykkt að senda fleiri vopn til landsins þrátt fyrir mótmæli Rússa.
Austin sagði að Bandarískir embættismenn muni í þessari viku hægt og rólega snúa aftur til Úkraínu og tilkynnti um enn frekari hernaðaraðstoð. Stuðningurinn er metinn á 700 milljónir dollara eða það sem nemur tæpum 91 milljarði íslenskra króna.