Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir að Úkraínumenn geti unnið stríðið nú þegar ljóst er að hernaðaraðgerðir Rússa þar í landi hafi ekki gengið samkvæmt áætlun.
Stoltenberg benti til að mynda á að sókn Rússa í Donbas-héruðum í austurhluta Úkraínu hefði stöðvast.
„Hernaðaraðgerðir Rússa í Úkraínu ganga ekki eins vel og ráðamenn í Moskvu vonuðust eftir,“ sagði Stoltenberg.
Hann benti á að Rússum hefði mistekist að ná höfuðborginni Kænugarði, og fleiri borgum á sitt vald.