Joe Biden Bandaríkjaforseti sakaði starfsbróður sinn Volodimír Selenskí, forseta Úkraínu, um að hafa neitað að hlusta á viðvaranir Bandaríkjamanna í aðdraganda stríðsins um að innrás Rússa væri yfirvofandi.
„Ég veit að margir hugsuðu með sér að við værum að ýkja,“ sagði Biden þegar hann ávarpaði fjáröflunarsamkomu sem haldinn var í Los Angeles, og vísaði þá til viðvarana Bandaríkjamanna um að Rússar gætu gert innrás.
„Ég vissi þó að við værum með gögn til stuðnings,“ bætti hann við.
„[Vladimír Pútín Rússlandsforseti] ætlaði yfir landamærin. Það var enginn vafi og Selenskí vildi ekki hlusta á það, og ekki heldur margir aðrir. Ég skil af hverju þau vildu ekki heyra þetta, en hann lét vaða.“