Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segist ekki hafa neitt út á það að setja þó Úkraína ákveði að ganga í Evrópusambandið.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lýst yfir stuðningi við umsókn Úkraínumanna að Evrópusambandinu (ESB). Öll ESB-ríkin 27 verða að samþykkja umsóknina til að landið fái inngöngu og ferlið getur tekið nokkur ár.
Pútín lýsti viðhorfi Rússlands til mögulegrar aðildar Úkraínu að Evrópusambandinu í ræðu sinni á alþjóðaviðskiptaráðstefnu í Sankti Péturborg í dag.
„Við höfum ekkert á móti því. Þetta er þeirra ákvörðun sem fullvalda ríki, hvaða efnahagssambönd þau ganga inn í. Þetta er bara þeirra mál, mál úkraínsku þjóðarinnar.“
Hann segir öðru máli gegna um aðild að Atlantshafsbandalaginu, enda sé það hernaðarbandalag.
Er það þó skoðun Pútín, að eigin sögn, að Evrópusambandið yrði að nýlendu vestrænna ríkja, fari svo að Úkraína gangi í það.