Vladimír Pútín Rússlandsforseti mætir ekki í jarðarför Mikhaíl Gorbatsjovs, síðasta leiðtoga Sovétríkjanna, sem lést á þriðjudag síðastliðinn 91 árs að aldri. Jarðarförin verður haldin á laugardag.
Pútín sendi fjölskyldu Gorbatsjovs samúðarskeyti á dögunum þar sem hann sagði að Gorbatsjov hefði breytt gangi sögunnar og leitt landið á flóknum og erfiðum tímum.
Gorbatsjov bæði hældi og gagnrýndi stefnumál Pútíns í stjórnartíð hans sem forseta Rússlands.