Rússland vill eyðileggja hversdagslíf í Evrópu, að sögn Volodimírs Selenskís, forseta Úkraínu. Hann telur Kreml nú reyna að ráðast á íbúa, á svæðum sem ekki er enn hægt að skjóta flugskeytum á, með fátækt og með því að skapa glundroða í stjórnmálum. BBC greinir frá.
Yfirlýsing Selenskís kemur í kjölfar þess að Rússar stöðvuðu gassölu til Þýskalands tímabundið. Yfirvöld í Rússlandi segja ákvörðunina hafa verið tekna sökum tæknilegrar vandamála.
Rússneska stórfyrirtækið Gazprom sendi frá sér tilkynningu þar sem fram kom að leiðsla sem skiptir miklu máli fyrir gasflutninginn þurfi á viðgerð að halda. Í hefðbundnu viðhaldi hafi komið í ljós leki í túrbínu samkvæmt tilkynningunni. Á meðan unnið sé að viðgerð sé lokað fyrir afhendingu jarðgass.
Þjóðverjar eru þó ekki sannfærðir og telja Rússa vera að beita sig þrýstingi vegna viðbragða við stríðinu í Úkraínu. Olaf Scholz hefur sagt að Rússar séu ekki lengur áreiðanlegur þegar kemur að orkuviðskiptum.
Útlit er fyrir að þetta muni leiða til enn frekari orkukreppu í Evrópu.