Myndskeið af Pelosi að óska eftir hjálp

Pelosi sést hér tala í síma í myndskeiðinu sem var …
Pelosi sést hér tala í síma í myndskeiðinu sem var fyrst sýnt við vitnaleiðslur vegna óeirðanna við þinghúsið. AFP

Birt hefur verið opinberlega myndskeið sem sýnir Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, kalla eftir aukinni aðstoð vegna árásarinnar sem var gerð á bandaríska þinghúsið 6. janúar 2021.

Myndskeiðið var fyrst birt við vitnaleiðslur í tengslum við óeirðirnar. Dóttir Pelosi, Alexandra Pelosi, sem starfar við gerð heimildamynda, tók upp myndskeiðið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert