233 íranskir drónar skotnir niður

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði í ávarpi sínu að hersveitir landsins hafi skotið niður 233 íranska dróna á einum mánuði.

Stjórnvöld í Rússlandi og Íran hafa neitað því að nota dróna í Úkraínu en Nabila Massrali, talsmaður utanríkismálastefnu ESB, sagði sambandið hafa „nægar sannanir“ og að í undirbúningi séu nýjar refsiaðgerðir gegn Íran.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert