Sjö létu lífið í skotárás á samkunduhús í austurhluta Jerúsalem í dag. Að minnsta kosti þrír aðrir hlutu skotsár í árásinni. Meðal hinna særðu er fjórtán ára barn.
Lögregla var fljót á vettvang og var árásarmanninum banað á vettvangi.
Yfirvöld í Ísrael segja árásina vera hryðjuverk.