Hlegið var að rússneska utanríkisráðherranum, Sergei Lavrov, eftir að hann sagði að stríðið í Úkraínu hafi verið háð gegn Rússlandi á fundi G20-ríkjanna í gær.
BBC greinir frá.
Lavrov er staddur í Nýju Delí á Indlandi þar sem fundur G20-ríkjanna fer fram.
Einnig hélt Lavrov því fram að Rússar væru að reyna að stöðva stríðið, en Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar í fyrra.
Atvikið má sjá í myndbandinu hér að neðan.