Vísitölur færast upp á við eftir þungan morgun

Bréf svissneska bankans UBS lækkuðu skarpt í morgun, en hafa …
Bréf svissneska bankans UBS lækkuðu skarpt í morgun, en hafa síðan tekið nokkuð við sér þó lækkunin nemi enn rúmlega 3%. Talsverður þrýstingur hefur einnig verið á hlutabréf annarra banka í Evrópu í morgun, en hlutabréfavísitölur eru þó almennt upp á við eftir höggið í morgun. AFP/Fabrice COFFRINI

Hluta­bréfa­vísi­töl­ur í Evr­ópu hafa þokast upp á við í viðskipt­um í dag eft­ir að hafa byrjað með smá dýfu við upp­haf viðskipta. Meiri pressa hef­ur þó verið á hluta­bréf­um banka sem flest hafa lækkað í dag.

Seðlabank­ar Banda­ríkj­anna, Bret­lands, Kan­ada, Jap­ans, Sviss og Evr­ópu­sam­bands­ins til­kynntu í gær­kvöldi að þeir ætluðu að standa sam­an að aðgerðum til þess að bæta aðgang banka að lausa­fé, en aðgerðunum var ætlað að róa taug­ar fjár­festa varðandi banka­kerfi heims­ins. Hafði fyrr í gær verið til­kynnt um að sviss­neski UBS-bank­inn myndi kaupa Cred­it Suis­se-bank­ann, en sviss­nesk stjórn­völd lögðu mikið kapp á að kaup­in næðu í gegn fyr­ir opn­un markaða í dag.

Evr­ópski seðlabank­inn sagði í yf­ir­lýs­ingu í morg­un að evr­ópska banka­kerfið væri út­halds­gott og hefði nægt lausa­fé.

Eins og fyrr seg­ir tóku flest­ir markaðir í Evr­ópu dýfu við upp­haf viðskipta í morg­un. Lækkuðu bréf banka nokkuð og fóru bréf Deutsche bank m.a. niður um 10% og BNP Pari­bas um 8%. Þegar leið á morg­un­inn tóku hluta­bréf hins veg­ar að hækka á ný og eru bréf bank­anna tveggja nú niður um tæp­lega 2%.

Bréf í UBS-bank­an­um lækkuðu strax í morg­un um 13%, en hafa síðan hækkað nokkuð og er lækk­un dags­ins nú í um 3,3%.

Breska FTSE 100-vísi­tal­an hef­ur nú á tólfta tím­an­um hækkað um 0,3% í viðskipt­um í morg­un. DAX-vísi­tal­an í Þýskalandi um 0,56% og CAC 40-vísi­tal­an í Frakklandi um 0,75%.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert