Fleiri en 120 lögreglumenn hafa særst í mómælunum í Frakklandi í dag. Þá hafa 80 manns hafa verið handteknir.
Miðillinn France24 greinir frá.
Mómæli í Frakklandi hófust í síðustu viku í kjölfar þess að ný lög um hækkun eftirlaunaaldurs voru samþykkt. Stjórnvöld þvinguðu frumvarpinu í gegn án atkvæðagreiðslu franska þingsins.
Aukin harka hefur færst í mótmælin í dag. Hafa mótmælendur valdið miklum skemmdum í París, höfuðborg Frakklands.