Myndband sýnir lögregluþjóna skjóta árásarmanninn

Minnst þrjú börn létust í skotárás í einkaskóla í Nashville …
Minnst þrjú börn létust í skotárás í einkaskóla í Nashville fyrr í dag. mbl.is

Lög­regl­an í Nashville-borg í Tenn­essee hef­ur nú deilt mynd­bandi úr lík­ams­mynda­vél­um lög­reglu­manna sem skutu árás­ar­mann­inn sem stóð að baki skotárás­inni sem fram­in  var í kristi­lega barna­skól­an­um The Co­ven­ant School.

Mynd­bandið má sjá hér að neðan.

Sjö lét­ust í árás­inni, þar á meðal árás­armaður­inn, hinn 28 ára Ai­den Hale. Hale var skot­inn til bana af lög­regluþjón­um sem mættu á vett­vang.

Fyrr í dag kom fram að um kven­kyns árás­ar­mann væri að ræða en síðar hef­ur verið greint frá því að árás­armaður­inn hafi verið trans maður.

Mynd­ir af vopn­un­um sem Hale hafði meðferðis má sjá hér að neðan.




mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert
Loka