Þingmenn öldungadeildar Bandaríkjaþings hafa samþykkt samkomulag um að hækka skuldaþak og þar af leiðandi afstýra greiðslufalli ríkissjóðs landsins.
Samkomulagið var samþykkt með 63 atkvæðum gegn 36, degi eftir að það sigldi í gegnum fulltrúadeild Bandaríkjaþings.
Demókratinn Joe Biden Bandaríkjaforseti og Repúblikanar náðu samkomulagi um hækkun skuldaþaksins á dögunum.
„Enginn fær allt sem hann vill í samningaviðræðum, en þið getið verið fullviss um að þetta samkomulag er mikill sigur fyrir efnahaginn okkar og bandarísku þjóðina,” sagði Biden í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum.
Hann kvaðst ætla að undirrita samkomulagið „eins fljótt og auðið er” og ávarpa þjóðina síðar í dag.
Leiðtogi meirihlutans í öldungadeildinni, Chuck Schumer, bætti við að þjóðin gæti núna „andað léttar” eftir að hafa komið í veg fyrir mikið efnahagshrun.
Skuldir bandaríska ríkisins hafa vaxið jafnt og þétt síðustu áratugi en aukningin hefur þó verið heldur skarpari síðustu ár. Skuldaþak sjóðsins stendur nú í 31,4 billjónum bandaríkjadala.