Íhaldsflokkurinn fór illa út úr aukakosningum

Niðurstöður kosninganna þýða að Rishi Sunak forsætisráðherra verður hlíft frá …
Niðurstöður kosninganna þýða að Rishi Sunak forsætisráðherra verður hlíft frá því að verða fyrsti forsætisráðherra Bretlands í 55 ár til þess að tapa þremur kosningum á einum degi. AFP/Alberto Pezzali

Íhaldsflokkurinn í Bretlandi hefur misst tvö þingsæti en heldur enn fyrrum sæti Boris Johnsons í Uxbridge. BBC segir frá.

Þrír þingmenn Íhaldsflokksins sögðu nýlega af sér og þurfti þá að efna til aukakosninga um þingsæti þeirra.

Sunak hlíft frá niðurlægingu

Íhaldsmönnum tókst ekki að setja mann frá sér í sæti Nigels Adams og Davids Warburtons, en héldu naumlega í sæti Johnsons.

Niðurstöður kosninganna þýða að Rishi Sunak forsætisráðherra verður hlíft frá því að verða fyrsti forsætisráðherra Bretlands í 55 ár til þess að tapa þremur kosningum á einum degi.

Á næsta ári verða þingkosningar í Bretlandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert