Höfðar mál vegna samsæriskenninga fjölmiðils

Írski fjölmiðillinn The Irish Light er þekktur fyrir róttækar samsæriskenningar …
Írski fjölmiðillinn The Irish Light er þekktur fyrir róttækar samsæriskenningar og póilitískan áróður. Skjáskot/ The Irish Light

Írsk móðir hefur höfðað mál gegn dagblaði þar í landi vegna umfjöllunar dagblaðsins um dauða sonar síns, en í umfjölluninni er að finna ofsafengnar samsæriskenningar sem ranglega fullyrða að sonur hennar hafi látist af völdum Covid-19-bóluefnisins. BBC greinir frá. 

Í málsókninni kemur fram að írski fjölmiðillinn „The Irish Light“ hafi ítrekað brotið gegn móður drengsins, Edel Campbell, með umfjöllun sinni á vefsíðu dagblaðsins.

Sögðu drenginn hafa látist vegna bóluefnisins

Í umfjöllun sinni á síðasta ári hélt The Irish Light fram að sonur Campbell hafi verið á meðal 41 einstaklings sem lést vegna Covid-19-bóluefnisins, en sú var ekki raunin. Drengurinn, sem var einungis 18 ára þegar hann lést, féll fyrir eigin hendi í ágúst 2021.

Í kjölfar málsóknarinnar hafa Campbell og lögfræðingi hennar borist fjöldi líflátshótana frá lesendum fjölmiðilsins. Þá hafa dagblaðið og ritstjóri þess einnig ásakað Campbell um svívirðilegar lygar, stórfelld svik og gefið í skyn að hún gangi ekki heil til skógar. 

Róttækar samsæriskenningar algengar

Í umfjöllun BBC kemur fram að samsæriskenningasmiðir um allan heim hafi á undanförnum árum notfært sér tugi hörmulegra dauðsfalla til þess að dreifa röngum upplýsingum og áróðri um bóluefni gegn Covid-19 og er málið því ekki einsdæmi.

Þetta mun þó vera í fyrsta sinn sem ættingi höfðar mál gegn fjölmiðlinum, sem þekktur er þar í landi fyrir róttækar samsæriskenningar.

„Ég skil vel aðstandendur þeirra sem verða fyrir ærumeiðingum af þessu tagi,“ segir lögmaður Campbell í samtali við BBC, en í kjölfar bakslagsins sem hefur fylgt málsókninni segir Campbell að fjölmiðillinn hafi gert líf sitt að helvíti og að nú sé hún hrædd við að tjá sig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert