Jevgení Prigósjín, leiðtogi Wagner-málaliðahópsins, hefur verið úrskurðaður látinn eftir erfðarannsókn á líkum farþeganna í einkaþotunni sem fórst skammt frá Moskvu á miðvikudag. Hann var á meðal skráðra farþega í vélinni.
BBC greinir frá.
Rannsóknarnefnd hefur staðfest að kennsl hafi verið borin á öll fórnarlömbin og að nöfn þeirra stemmi við farþegalistann.
Einkaþota málaliðaleiðtogans féll til jarðar með þeim afleiðingum að allir farþegar og áhöfn hennar létust.
Stjórnvöld í Rússlandi hafa neitað öllum getgátum um að þau hafi valdið slysinu.