Fyrrverandi rússneskur lögreglumaður, sem var dæmdur árið 2006 fyrir morðið á blaðamanninum Önnu Politkovskaju, hefur verið náðaður eftir að hafa tekið þátt í hernaðaraðgerðum Rússa í Úkraínu.
Lögmaður mannsins greindi frá þessu í samtali við AFP-fréttaveituna.
Hann segir að maðurinn, Sergei Khadsjikurbanov, hafi tekið þátt í hernaðaraðgerðum í Úkraínustríðinu sem sérsveitarmaður. Þegar samningur hans rann út gaf forsetinn út tilskipun þar sem hann var náðaður.