Mengunarþoka umlykur borgina Dúbaí á sama tíma og loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP28, fer þar fram.
Mannréttindavaktin sagði í gær að Sameinuðu arabísku furstadæmin væru að kafna í „hættulega mikilli” loftmengun á sama tíma og þau héldu ráðstefnuna.
Loftmengun er „skítugt leyndarmál” sem stjórnvöld í landinu hafa grafið niður, að sögn samtakanna.