Yfirgnæfandi meirihluti Palestínumanna telur að hryðjuverkin sem framin var af Hamas-samtökunum í Ísrael þann 7. október hafi verið réttmæt, samkvæmt niðurstöðum könnunar.
Þá hefur stuðningur við hryðjuverkasamtökin aukist bæði á Gasasvæðinu og á Vesturbakkanum.
Það er Reuters sem greinir frá könnun palestínska könnunarfyrirtækisins The Palestinian Center for Policy and Research (PCPSR).
Samkvæmt könnuninni þá styðja 72% Palestínumanna hryðjuverkin þar sem um 1.200 manns féllu í valinn, aðallega óbreyttir borgarar, og um 250 manns voru teknir gíslingu.
Var þetta stærsta fjöldamorð gyðinga síðan í helförinni. 22% palestínskra svarenda sögðu að það hafa verið rangt að fremja árásina.
Í frétt Reuters kemur fram að stuðningur við Hamas hafi þrefaldast á Vesturbakkanum.
52% af íbúum Gasasvæðisins, þar sem stríðið er nú í gangi á milli Ísraels og Hamas, segjast sátt með hlutverk Hamas í stríðinu á meðan að 85% af svarendum á Vesturbakkanum voru sátt með Hamas.
Í könnuninni kom einnig fram að 44% af íbúum Gasa teldu sig hafa nóg af vatni og mat á meðan 56% sögðust skorta birgðir.
64% svarenda á Gasasvæðinu sögðust hafa misst fjölskyldumeðlim eða eiga fjölskyldumeðlim sem hefur særst í átökunum.