Hind Rajab, sex ára stúlka sem saknað hefur verið á Gasasvæðinu frá 29. janúar, hefur fundist látin ásamt fjölskyldu sinni og tveimur sjúkraflutningamönnum.
Þegar síðast heyrðist frá henni var hún föst í bílflaki ásamt skyldmennum sínum, sem öll voru þá þegar látin.
Breska ríkisútvarpið og aðrir miðlar greina nú frá þessu.
Rajab og fjölskylda hennar voru að flýja Gasaborg. Virðast þau hafa mætt skothríð frá herliði Ísraela og skriðdrekum.
mbl.is fjallaði um stúlkuna og leitina að henni í lok janúar. Fullyrt var þá að systir hennar hefði verið í bílnum. Svo var ekki, miðað við nýjasta fréttaflutning.
Á upptökum Rauða hálfmánans má heyra stúlkuna ræða við viðbragðsaðila hjálparsamtakanna.
Gefa þær til kynna að hún hafi verið ein á lífi í bifreiðinni og að hún hafi falið sig undir líkum skyldmenna sinna.
Í símtalinu grátbað stúlkan um hjálp áður en skothvellir heyrðust og símtalinu lauk.
Viðbragðsaðilar fundu bílinn sundurskotinn í gær, laugardag, á skilgreindu átakasvæði og reyndist Rajab vera á meðal hinna látnu í bílnum.
Þá fannst sjúkrabíll sem sendur var til að aðstoða stúlkuna gjöreyðilagður og fundust tveir sjúkraflutningamenn látnir.
Talsmenn Rauða hálfmánans hafa sakað Ísraelsher um að hafa vísvitandi ráðist að sjúkrabílnum sem sendur var fjölskyldunni til hjálpar.
Að sögn samtakanna höfðu Ísraelsmenn veitt heimild til að aðstoða stúlkuna. Hernum hafði verið gefin upp nákvæm hnit þangað sem sjúkrabíllinn hugðist fara í björgunarleiðangur til stúlkunnar.
Ísraelsmenn hafa sakað Rauða hálfmánann um að notast við sjúkrabíla til að flytja vopn til liðsmanna hryðjuverkasamtakanna Hamas á átakasvæðum.
Samtöl við Rajab voru gerð opinber að hluta og vöktu mikla athygli. Þá var ráðist í umfangsmikið ákall þar sem biðlað var til fólks að reyna að finna hana og koma henni til hjálpar.
Móðir stúlkunnar sagði í samtali við BBC, áður en dóttir hennar fannst látin, að hún væri að vonast eftir dóttur sinni á hverri sekúndu.
Nú krefst hún þess að einhver verði dreginn til ábyrgðar.
„Hversu margar fleiri mæður munu finna fyrir þessum sársauka? Hversu mörg fleiri börn viltu að verði drepin?“ sagði hún á sjúkrahúsinu þar sem hún beið frétta af dóttur sinni.
Hélt hún þar á lítilli bleikri tösku sem hún ætlaði að láta litlu dóttur sína fá.
Í janúar var fjallað um átján ára gamla palestínska konu, sem horfði upp á móður sína skotna til bana þar sem hún leiddi fjögurra ára gamlan dreng, ömmubarnið, sér við hlið á flótta undan vopnuðum átökum í al-Rimal-hverfinu í Gasaborg 12. nóvember.
Höfðu ísraelskir skriðdrekar ekið inn í hverfið nokkrum dögum áður, árásardrónar svifu yfir byggðinni og sprengjugnýrinn var ærandi.
„Móðir mín hefði orðið 58 ára 30. desember og hélt í hönd barnabarnsins síns. Hvers vegna að skjóta hana?“ spurði konan, Sara Khreis, í samtali við fréttamann CNN.
Stríð Ísraels gegn hryðjuverkasamtökunum Hamas hefur skemmt eða eyðilagt um helming allra bygginga á Gasasvæðinu, að því er fram kemur í skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem gefin var út í lok janúar.
Samkvæmt útreikningum stofnunarinnar í lok nóvember höfðu 37.379 byggingar, eða 18% af heildarfjölda bygginga á Gasasvæðinu, verið ýmist skemmdar eða eyðilagðar í árásum Ísraelshers.
Síðan þá sýna gervihnattamyndir sífellt meiri eyðileggingu, að sögn Rami Alazzeh, hagfræðings við stofnunina sem sérhæfir sig í aðstoð við palestínska borgara, en hann er meðhöfundur skýrslunnar.
„Nýju gögnin sýna að 50% bygginga í Gasa eru skemmdar eða eyðilagðar,“ sagði hann í samtali við AFP-fréttastofuna. Varaði hann við því að þeim mun lengur sem hernaðaraðgerðir Ísraelshers í Gasa stæðu yfir, því verri yrðu afleiðingarnar.
„Gasa á þessari stundu er óbyggilegt.“