Á þriðja hundrað manns létust í björgunaraðgerð Ísraela, að sögn heilbrigðisyfirvalda á Gasa, þegar Ísraelsher bjargaði fjórum gíslum úr haldi Hamas.
Ísraelsher bjargaði fjórum gíslum úr haldi hryðjuverkasamtakanna Hamas í gær. Gíslarnir voru hnepptir í hald Hamas í hryðjuverkaárásinni hinn 7. október.
Heilbrigðisyfirvöld á Gasa, sem eru undir stjórn Hamas, segja aftur á móti að Ísraelsher hafi fellt um 274 Palestínumenn í aðgerðinni.
Þetta væri þá einn sá mannskæðasti dagur í átökunum hingað til.
Talsmaður Ísraelshers, Daniel Hagari, áætlaði að innan við 100 manns hefðu farist í gær.