Vladimír Pútín Rússlandsforseti telur að kosningarnar til Evrópuþingsins, sem fara nú fram, muni reyna á hefðbundin gildi Vesturlanda.
Pútín flutti ræðu á föstudag á árlegri efnahagsráðstefnu í St. Pétursborg, og sagði að evrópsk menning stæði höllum fæti vegna „fjölþjóðlegra frjálslyndra viðhorfa“.
Pútín sagði í ræðu sinni að verið væri að deyða evrópska og kristna menningu í Vestur-Evrópu. „Hvar er þessi evrópska menning? Hún verður að öllu horfin innan skamms. Minnisvarðar arkitektúrsins munu einir standa eftir,“ sagði hann.
Sagði Pútín jafnframt að kosningarnar til Evrópuþings myndu skýra stöðu hefðbundinna gilda í Evrópu. „Margir Evrópubúar gera sér grein fyrir þessu og vinna að næstu skrefum á grunni hinna hefðbundnu gilda,“ sagði hann.
Útgönguspár víða í Evrópu benda til mikillar sveiflu í átt að þjóðernissinnuðum flokkum sem eru langt til hægri.