Donald Trump, forsetaframbjóðandi repúblikana, hefur samþykkt að mæta Kamölu Harris, væntanlegum forsetaframbjóðanda demókrata, í kappræðum á Fox News þann 4. september.
„Ég hef komist að samkomulagi við FoxNews um kappræður við Kamölu Harris miðvikudaginn 4. september,“ sagði í færslu Trumps á miðli hans Truth Social.
Enn er óljóst hvort Harris hafi samþykkt boðið.
Einnig er möguleiki á að frambjóðendurnir muni mætast hjá ABC News 10. september. Í síðustu viku sagði talsmaður Trump þó „óviðeigandi“ að staðfesta kappræður fyrr en Harris hefur verið formlega valin frambjóðandi demókrata.
Harris hefur áður sagst tilbúin til að mæta Trump.
Í færslu Trump sagði að kappræðurnar á Fox News fari fram í Pennsylvaníu og að Bret Baier og Martha MacCullum muni stýra þeim. Þá verði áhorfendur í sal.