Pia Kjærsgaard, þingmaður Danska Þjóðarflokksins, gefur ekki kost á sér í næstu kosningum og hyggst hætta í stjórnmálum.
Þetta segir hún í viðtali við TV2.
Kjæarsgaard er einn merkasti og umdeildasti stjórnmálamaður Danmerkur síðari tíma en hún hefur setið á þingi í 40 ár.
„Þú verður að fara þegar þú ert elskaður og virtur,“ sagði Kjærsgaard, sem er 77 ára að aldri.
Hún leggur áherslu á að ákvörðunin sé hennar eigin og að hún hafi hugsað sig vel um. Þó að henni finnist, að eigin sögn, dálítið erfitt með það að þurfa að hætta í pólitík, efast hún engan veginn um að það sé rétt.
Kjærsgaard var í forystu Framfaraflokksins en árið 1995 sagði hún skilið við flokkinn og stofnaði Danska Þjóðarflokkinn. Þá gegndi hún stöfum sem forseti danska þjóðarþingsins í fjögur ár en lét af því embætti fyrir fimm árum.
Kjærsgaard, sem lengi hefur rekið harða stefnu í málefnum innflytjenda, var gestur á hátíðarfundi Alþingis á Þingvöllum árið 2018 og voru margir sem mótmæltu komu hennar á fundinn. Þingflokkur Pírada ákvað til að mynda að sniðganga fundinn vegna veru Kjærsgaard og þá yfirgaf Helga Vala Helgadóttir, þingkona Samfylkingarinnar, þingpalla þegar Kjærsgaard hóf upp rausn sína.