Um hvað yrði samið?

Það er eins gott að þetta heimskautafé er með ull …
Það er eins gott að þetta heimskautafé er með ull á kroppnum. Rax / Ragnar Axelsson

Gengi Ísland í ESB yrði sameiginlega landbúnaðarstefnan tekin upp hér á landi með þeirri aðlögun og þeim undanþágum sem um myndi semjast. En hvað væri hægt að semja um?

Í samningaviðræðunum myndu Íslendingar án vafa líta til reynslu Finna og Svía sem sömdu um að geta styrkt landbúnað á heimskautasvæðum og á harðbýlum svæðum umfram það sem gerist og gengur í ESB. Vegna þessara samninga hafa Finnar nú heimild til að veita 35% meiri styrki til landbúnaðar en meðaltal ESB.

Sérstakur stuðningur við heimskautalandbúnað nær til þess svæðis sem er norðan 62° breiddargráðu og það vill svo til að allt Ísland er norðar en það. Þá má einnig styðja sérstaklega við bakið á landbúnaði á harðbýlum svæðum og allar líkur eru taldar á að Ísland allt myndi falla undir þá skilgreiningu. Engin ástæða er til að ætla annað en að Íslendingar gætu samið um að minnsta kosti sambærilegan stuðning við sinn landbúnað eins og Finnar sömdu um.

Ekki úr sjóðum ESB

Mikilvægt er að hafa í huga að umframstyrkir til landbúnaðar á norðurslóðum eru ekki greiddir úr sjóðum ESB heldur er eingöngu um heimild til innanlandsstuðnings að ræða. Í Finnlandi greiðir ESB um 30% af harðbýlisstyrkjum en finnski ríkissjóðurinn greiðir 70%. Þannig greiðir finnski ríkissjóðurinn nú um 60% af styrkjum til landbúnaðar í Finnlandi en 40% koma úr sjóðum ESB.

Íslenskur landbúnaður gæti sem sagt notið styrkja umfram það sem gengur og gerist í ESB en þeir fjármunir yrðu að langmestu leyti greiddir úr ríkissjóði Íslands.

Hversu mikill sá stuðningur yrði færi annars vegar eftir því hvaða samning væri hægt að gera við ESB og hins vegar eftir því hversu mikið Íslendingar gætu og vildu borga aukalega til innlends landbúnaðar.

Telur að staða landbúnaðar yrði verri innan ESB

Í ítarlegri skýrslu utanríkisráðuneytisins um íslenskan landbúnað í alþjóðlegu umhverfi sem kom út árið 2003 var komist að þeirri niðurstöðu að miðað við óbreytt styrkjakerfi yrði að telja að staða íslensk landbúnaðar yrði verri innan ESB en utan þess. Erna telur að það mat eigi enn við. Þar vegur þyngst sú staðreynd að allir innflutningstollar leggjast af frá fyrsta degi ESB-aðildar. Það sé þó ekki að hægt að segja til um hversu mikið styrkir muni lækka fyrr en aðildarsamningur liggur fyrir. „Ég hef ekki nægjanlegt hugmyndaflug til að sjá hvað kæmi út úr viðræðunum.“

Samningar á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar WTO settu verulegt strik í (bú)reikninginn en skv. samningsdrögunum myndu tollar lækka og styrkjakerfið breytast.

Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur Bændasamtakanna, telur að hægt væri að „halda betur utan um“ landbúnaðinn utan sambandsins, jafnvel þótt samið yrði á vettvangi WTO. „Á mannamáli þýðir það minni samdrátt. Þetta segi ég miðað við að annað verði óbreytt og niðurstaða í yfirstandandi WTO-viðræðum í takt við fyrirliggjandi samningsdrög og að íslensk stjórnvöld myndu ekki ganga lengra í því að breyta landbúnaðarstefnunni.“

mbl.is

Bloggað um fréttina