Þingfundi hefur verið frestað til 16.45 vegna þingflokksfundar. Á fundinum kemur í ljós hvort flokkarnir ná saman um atkvæðagreiðslu um ESB-tillögurnar í dag. Tíu þingmenn eru enn á mælendaskrá og þurfti Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, að gera hlé á ræðu sinni vegna fundarins.