„Það er bjart yfir þessum degi,“ sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í ræðu sinni á Alþingi í dag. Hann sagði þingið vera að ljúka sögulegri umræðu sem hefði verið skemmtileg, málefnaleg og upplýsandi. Hvernig sem færi í atkvæðagreiðslunni væri ljóst að þingmenn hefðu heyjað sér mikinn þekkingarforða. Það væri mikilvægt því umræðan um ESB mun lifa áfram. Össur sagðist hafa fundið fyrir skilning á því af hálfu stjórnarandstöðunnar að látið verði á málið reyna. Fyrst og fremst hefðu í umræðunni verið reifuð tæknileg atriði, s.s. með hvaða hætti fara á í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann sagðist ánægður með það enda „kominn tími til að þjóðin fái að leiða þessa deilu til lykta.“ Össur sagði það gert nema fyrir liggi gögn málsins, þ.e. að búið verður að sækja um aðild, þannig að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun.