Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem samþykki Alþingis Íslendinga, fyrir því að senda inn aðildarumsókn að Evrópusambandinu, er fagnað.
„Ákvörðun íslenska þingsins er til marks um kraft Evrópuverkefnisins og sýnir þá von sem Evrópa stendur fyrir,” segir í yfirlýsingu Jose Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnarinnar.
„Ísland er Evrópuþjóð með djúpar lýðræðislegar rætur. Það er nú í höndum íslensku ríkisstjórnarinnar að fylgja eftir ákvörðun sinni og sækja formlega um aðild að sambandinu.”
Olli Rehn, sem fer með stækkunarmál sambandsins innan framkvæmdastjórnarinnar, segist einnig fagna ákvörðun Íslendinga og því að stækkun sambandsins nái hugsanlega brátt til norðvesturhorns Evrópu.