Þingmenn taka þátt í aðalfundi ESB andstæðinga í Noregi

Ásmundur Einar Daðason
Ásmundur Einar Daðason

Í morgun fór sendinefnd níu Íslendinga til Noregs til að taka þátt í aðalfundi Nei til EU í Noregi, en það eru systursamtök Heimssýnar á Íslandi. Í sendinefndinni eru m.a. þrír þingmenn frá jafn mörgum flokkum.

Í fréttatilkynningu frá Heimssýn kemur fram að heimsókn Íslendinganna hefur vakið mikla fjölmiðlaathygli í Noregi og Ásmundur Einar Daðason, nýkjörinn formaður Heimssýnar m.a. verið í sjónvarps- og útvarpsviðtölum hjá norska sjónvarpinu og víðar.

Ísland er eitt meginþema aðalfundarins, sem haldinn er á Gardemoen, að þessu sinni og halda íslensku fulltrúarnir nokkrar ræður og taka þátt í málstofum um Ísland.

Á mánudag munu fulltrúar Heimssýnar funda með Nei til EU á skrifstofu samtakanna í Ósló og með systurflokkum Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna, samkvæmt tilkynningu. Í sendinefndinni eru:
Ásmundur Einar Daðason alþingismaður
Vigdís Hausdóttir alþingismaður
Unnur Brá Konráðsdóttir alþingismaður
Kolbrún Halldórsdóttir fv. umhverfisráðherra
Reynir Jóhannesson starfsmaður Heimssýnar og félagi í SUS
Páll Vilhjálmsson blaðamaður
Ragnar Friðrik Ólafsson sálfræðingur
Guðjón Ebbi Guðjónsson frá ungum framsóknarmönnum
Brynja Björg Halldórsdóttir fv. formaður Ungra vinstri grænna

mbl.is

Bloggað um fréttina

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag