Klippt framan af fingri manns með garðklippum

Lögreglan á Akureyri hefur til rannsóknar alvarlega líkamsárás, þar sem klippt var framan af fingri manns á fimmtugsaldri með garðklippum. Þá voru tveir menn aðrir beittir harðræði og annar þeirra hugsanlega nefbrotinn. Gerðist þetta í húsi í miðbæ Akureyrar fyrir hádegi í gær.

Lögreglan handtók stuttu síðar þrjá menn í tengslum við rannsókn málsins og eru þeir í fangageymslum. Að sögn lögreglunnar hafa mennirnir oft komið við sögu ofbeldis- og fíkniefnabrota áður.

Lögreglan segir að málið sé í rannsókn, en ekki hafi reynst unnt að hefja yfirheyrslur yfir mönnunum fyrr en nú í morgun. Mennirnir munu hafa verið ölvaðir og í vímu af öðrum efnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert