Viðræðum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks á Akureyri haldið áfram eftir hádegi

Hermann Tómasson, oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri, segir viðræður fulltrúa flokksins og Sjálfstæðisflokks vera í gangi. Hlé hafi verið gert á viðræðunum í morgun en að til standi að halda þeim áfram eftir hádegi í dag. Hermann vildi þó ekki tjá sig um gang viðræðnanna er blaðamaður mbl.is ræddi við hann í morgun eða það hvort hann eigi von á að niðurstaða í þeim liggi fyrir fyrir helgi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert