Spáð 8-17 stiga hita í dag

Hægviðri var almennt á landinu í morgun, skýjað vestantil og sums staðar á annesjum norðantil, en annars léttskýjað. Hiti var 1 til 11 stig, hlýjast á Suðausturlandi.

Veðurstofan spáir vestan og norðvestan 3-8 metrum á sekúndu og víða léttskýjuðu en segir hætt við þokulofti við vesturströndina. Í kvöld og nótt þykknar upp sunnan- og vestantil. Hiti verður 8 til 17 stig að deginum, hlýjast inn til landsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert