Átta teknir fyrir akstur utan vega

Lögreglan á Selfossi eltist í gær við átta menn á svo kölluðum mótorkross vélhjólum sem óku utan vega á Hengilssvæðinu. Notaði lögreglan þyrlu við eltingarleikinn og náðust mennirnir allir. Þeir verða allir kærðir fyrir utanvegaakstur auk þess sem sumir þeirra voru á óskráðum hjólum. Nokkur erill hefur verið á Selfossi um helgina, nokkuð um ölvun og í nótt voru fimm ökumenn teknir, grunaðir um ölvunarakstur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert