Það er gífurleg stemning í kvennahlaupi á Eskifirði sem fram fer í 24 stiga hita.
Elsti keppandinn mun vera hún Ólöf Ólafsdóttir frá Sigmundarhúsum. Ólöf er 85 ára
og hefur tekið þátt í öllum hlaupum frá upphafi.
Ólöf Ólafsdóttir frá Sigmundarhúsum er elsti þátttakandinn á Eskifirði.
mbl.is/Helgi