Unglingsstúlka sem var farþegi í bílnum sem ók á ljósastaur í Ártúnsbrekku í Reykjavík um klukkan tvö í nótt liggur nú þungt haldin á gjörgæslu Landspítalans Háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Að sögn lækna er hún alvarlega slösuð, hún hlaut höfuðáverka og er haldið sofandi í öndunarvél.