Í skýrslu um erlenda ferðamenn á Íslandi kemur fram að að mikilvægustu atriðin í samgöngum á Íslandi séu umbætur á vegakerfinu bæði á og umhverfis hálendið svo og umhverfis höfuðborgarsvæðið. Segir að víða megi bæta merkingar á ensku og talið er brýnt að upplýsingar um færð að vetrarlagi og ástand vega séu aðgengilegar á ensku.
Skýrslan „Erlendir ferðamenn á Íslandi – þróun á ferðavenjum og áhrif á samgöngukerfi", er unnin af Bjarna Reynarssyni landfræðingi og leiðsögumanni hjá Land-ráð sf. fyrir samgönguráð og er tilgangur hennar meðal annars að kanna áhrifasvið höfuðborgarsvæðisins og helstu þéttbýlisstaða.
Í skýrslunni eru dregnar saman niðurstöður úr könnunum og tölfræðisöfnun Ferðamálastofu og fleiri aðila í ferðaþjónustu um ferðavenjur erlendra gesta hérlendis. Kemur í ljós að fjölgun erlendra ferðamanna hefur verið mun hraðari en til dæmis fjölgun landsmanna og vöxtur bílaumferðar síðasta áratuginn. Mest hefur fjölgað erlendum ferðamönnum sem koma hingað með skemmtiferðaskipum og ferðast þeir einkum um suðvesturhluta landsins og farþegar skipa sem hafa viðdvöl á Akureyri ferðast einkum um Mývatnssveit.
Skýrslan er hluti af stærra verkefni sem unnið er fyrir samgönguráð. Í haust koma síðan út tvær kannanir á ferðavenjum, önnur um innanlandsflug og í hinni eru birtar niðurstöður úr könnun á ferðavenjum frá 16 landsvæðum til höfuðborgarsvæðisins.