Skúturnar 19 sem þátt taka í siglingakeppninni Skippers d’Islande voru ræstar í Grundarfjarðarhöfn kl. 17 í dag. För þeirra er nú heitið til hafnar í Paimpol á ný en þaðan lögðu þær af stað þann 24. júní sl. áleiðis til Reykjavíkur. Frá Reykjavík var svo haldið til Grundarfjarðar þann 8. júli og er nú komið að heimferð á ný. Fyrir höndum er um 1300 sjómílna sigling og gert ráð fyrir að þær fyrstu verði í höfn í Paimpol þann 21. júlí n.k.
Þegar skúturnar voru ræstar af stað var VNV 4,9 metrar á sekúndu á sjálfvirkum vindmæli veðurstöðvarinnar í Grundarfirði þannig að skúturnar máttu sigla beitivind út fjörðinn. Skömmu síðar eða upp úr kl. 18 lagði skólaskip franska sjóhersins gólettan L’Etoile af stað í humátt á eftir keppnisskútunum.