Umræðuvettvangur opnaður á vefsíðu samgönguráðuneytisins

Umræðuvettvangur hefur verið opnaður á vef samgönguráðuneytisins. Þar verða kynnt mál sem eru til umfjöllunar í ráðuneytinu og leitast við að fá fram viðbrögð einstaklinga sem og hagsmunaaðila. Er þetta gert í því skyni að fá viðbrögð við málum sem eru nánast á hugmyndastigi áður en frekari vinna er lögð í málin.

Einnig er þessi vettvangur liður í þeirri stefnu samgönguráðuneytisins að viðhafa opna stjórnsýslu, að almenningur jafnt sem hagsmunaaðilar geti tjáð sig um mál sem eru til vinnslu í ráðuneytinu og haft áhrif á framvindu þeirra.

Fyrsta málið af þessum toga sem leitað verður viðbragða við er hvort breyta eigi bílprófsaldri úr 17 árum í 18. Þessari hugmynd hefur skotið upp í umræðu umferðarslys og hlutfall ungs fólks sem á aðild að umferðarslysum.

Hlekkinn Umræður er að finna vinstra megin á forsíðunni á vef ráðuneytisins

Vefur samgönguráðuneytisins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert