Fangi á Litla-Hrauni kærði samfanga sinn fyrir líkamsárás í vikunni. Að sögn lögreglunnar á Selfossi voru mennirnir á útisvæði við fangelsið þegar annar sló hinn í andlitið og nefbraut hann.
Lögreglan segir, að rannsókn sé að mestu lokið og að henni lokinni verði málið sent ákæruvaldi til frekari ákvörðunar.