Olíufélagið lækkaði verð á bensínlítra í dag um 1,10 krónur og segir að heimsmarkaðsverð hafi lækkað frá því sem það var hæst fyrir nokkrum dögum og einnig hafi staða krónunnar gagnvart Bandaríkjadal styrkst. Eftir lækkunina verður algengasta verð á 95 oktana bensíni 131,70 krónur í sjálfsafgreiðslu.