Veðurguðirnir launa þessa dagana landsmönnum þolinmæðina. Hlýtt er víða um land, einkum inn til landsins. 19 stiga hiti er í Krepputungu, og 18,6 gráður mældust á Hveravöllum, sem vart getur talist algengt þar sem þeir eru í 640 metra hæð. Hlýjast er þó í Húsafelli, en þar mældist hiti 19,8 gráður klukkan tvö í dag.