Stúlka á tvítugaldri slasaðist töluvert er ökumaður bíls sem hún var farþegi í missti stjórn á bílnum í hringtorginu við Melatorg. Bíllinn sem er talinn afa verið á töluverðri ferð hafnaði í trjálundi við torgið. Stúlkan sat beltislaus í aftursæti bílsins en ekkert farþegasæti var fyrir framan hana að sögn lögreglu og hafnaði stúlkan því á mælaborði bílsins. Ökumaður bílsins, sem einnig er á tvítugsaldri, fingurbrotnaði og einnig þurfti að sauma saman sár í andliti.