Fjörutíu kýr brunnu inni

Frá Húsatóftum I í morgun
Frá Húsatóftum I í morgun mbl.is/Guðmundur Karl

Um fjörutíu kýr og eitthvað af öðrum búfénaði brann inni í morgun þegar eldur kom upp í útihúsum við bæinn Húsatóftir I, á Skeiðum á Suðurlandi í morgun. Slökkvilið var kallað út skömmu fyrir klukkan hálf sjö og voru húsin alelda þegar að var komið. Eru bæði hlaða og fjós ónýt. Eldsupptök eru ekki ljós að svo stöddu samkvæmt upplýsingum frá brunavörnum Árnessýslu en rannsókn er hafin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert