Hestakerra fauk undir Ingólfsfjalli

Guðmundur Karl.

Hestakerra fauk á hliðina á þjóðvegi 1 undir Ingólfsfjalli um kl. 18 í dag. Eins og sjá má af meðfylgjandi mynd er allnokkur vindur á þessu svæði, en lögregluþjónninn sem sinnti útkallinu hallar vel upp í vindinn. Bíllinn sem dróg kerruna skemmdist ekki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert