Kristinn H. Gunnarsson býður sig fram í embætti ritara

Kristinn H. Gunnarsson.
Kristinn H. Gunnarsson.

Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram í embætti ritara Framsóknarflokksins á flokksþingi sem verður um næstu helgi. Áður hafa Birkir Jón Jónsson, alþingismaður, og Haukur Logi Karlsson tilkynnt um framboð í embættið.

Kristinn segir í tilkynningu, að ritari sé einn af þremur kjörnum forystumönnum flokksins og fari auk þess með forystu í innra starfi hans með því að leiða landstjórn Framsóknarflokksins, sem mótar stefnuna um innra starfið. Vænlegasta leiðin til þess að snúa vörn í sókn liggi í gegnum innra starf Framsóknarflokksins með virkri þátttöku hins almenna félagsmanns bæði í málefnaáherslum og við val á forystumönnum og frambjóðendum. Í Framsóknarflokknum séu um 10 þúsund félagsmenn og miklir sóknarmöguleikar fólgnir í því að nýta vilja og virkni hvers þeirra.

„Eftir langt starf innan stjórnmálaflokks og 24 ára setu samtals í sveitarstjórn og á Alþingi hef ég öðlast reynslu sem ég tel að geti orðið gagnleg í því starfi sem framundan er.

Ég legg áherslu á að Framsóknarflokkurinn er umbótasinnaður félagshyggjuflokkur sem starfar undir kjörorðinu manngildi ofar auðgildi og setur almenna hagsmuni ofar sérhagsmunum. Hófs þarf að gæta í markaðs- og einkavæðingu, jafna á lífskjör og gæta að tekjudreifingunni í þjóðfélaginu. Sýna áherslur flokksins á manngildið með áherslum á velferðarmál fremur en skattalækkun," segir Kristinn H. Gunnarsson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert