Hekla opnar nýjan sýningarsal fyrir Skodabíla að Laugavegi 172 á morgun klukkan 11. þar verður forsýning á nýjustu framleiðslu Skoda-verksmiðjanna, Skoda Roomster, og einnig verður kynntur Skoda Octavia RS með 200 hestafla vél. Verður boðið upp á sérstök opnunartilboð á Skoda Octavia og Skoda Fabia Terno.
Fram kemur í tilkynningu, að á morgun verði boðið upp á léttar veitingar, grillaðar pylsur, gos og íspinna í nýja sýningarsalnum og börnin fá gefins blöðrur.