Banaslys á Vesturlandsvegi

Einn lést og tveir eru alvarlega slasaðir eftir að bifreið ók á hross sem hljóp yfir Vesturlandsveg um miðnætti í nótt. Fjórir eru minna slasaðir. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu þá hljóp hross yfir veginn á milli Þingvallaleiðar og Köldukvíslar með þeim afleiðingum að ökumaður bifreiðarinnar, sem var á leiðinni upp á Kjalarnes, missti stjórn á henni og lenti bifreiðin á annarri bifreið sem var að koma úr gagnstæðri átt.

Farþegi í aftursæti bifreiðarinnar sem ók á hrossið lést en ökumaðurinn var fluttur mjög alvarlega slasaður á Landspítalann háskólasjúkrahús. Tveir farþegar í bifreiðinni slösuðust minna en voru einnig fluttir á sjúkrahús. Ökumaður hinnar bifreiðarinnar slasaðist einnig alvarlega og var fluttur á sjúkrahús en tveir farþegar í bifreiðinni voru minna slasaðir. Loka þurfti Vesturlandsveginum í þrjár klukkustundir og var hann því ekki opnaður á ný fyrr en á fjórða tímanum í nótt.

Alls hafa því 16 látist í umferðinni það sem af er ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert