Metþáttaka var í SMS kosningu í Rock Star Supernova, þar sem Magni Ásgeirsson er meðal þátttakenda. Og Vodafone bárust um 25% fleiri atkvæði í nótt en í síðustu vika, en þá var sett met í fjölda atkvæða. Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, segir einnig að mikil aukning hafi verið frá því í síðustu viku, og að aldrei hafi verið send jafnmörg atkvæði í eitt númer.