Mikill erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt. Óvenju mörg útköll voru vegna slagsmála í nótt og segir varðstjóri almenn leiðindi hafa verið í mönnum. Hópslagsmál brutust út í Hraunbæ í Árbæ þar sem unglingar voru með partí. Munu um tuttugu utanbæjarmenn hafa komið þar að og talið sig eiga eitthvað sökótt við einn þeirra sem fyrir var og leiddi það til hópslagsmála. Ekki þurfti að flytja neinn á slysavarðstofu en fáeinir munu hafa fengið högg og spörk í andlitið. Tveir aðkomumannanna voru handteknir og verða þeir yfirheyrðir með morgninum.